Heimaæfing - 29. apríl

3-6. flokkur

Við ætlum að auka á þrekið og hlaupa stóran hring í kringum Grenivík. Þegar að við höfum klárað að hlaupa ætlum við að rölta upp á sparkvöll og halda áfram að æfa okkur í því að halda boltanum á lofti. Hér eru nokkur trix sem skemmtilegt er að ná tökum á, æfingarnar eru miserfiðar.

Fyrst við erum upp á sparkvelli ætlum við að leggja boltann á mismundandi staði og taka aukaspyrnur. Reynum að æfa okkur áfram í mismunandi skottækni eins og við gerðum á síðustu æfingu.

6-7. flokkur

Nú erum komið að næsta skrefi í því að halda boltanum á lofti. Í þessari æfingu sýnir þjálfarinn okkur hvað það getur verið gott að láta boltann boppa á milli og þannig getum við náð betri völdun á honum.

Þegar að við erum búin að þessu ætlum við upp á sparkvöll að taka aukaspyrnur. Æfum okkur að taka 3-5 skot í hvert horn. Ef við erum að æfa með foreldri er gott að segja þeim áður en þið skjótið hvert þið eruð að miða.

8. flokkur

Við erum ekki ennþá klár í að halda á lofti! En við ætlum að gera nokkrar krefjandi tækniæfingar. Unnið er í 20 sekúndur í hverri æfingu og hvíld í 10 sek. Það er allt í góðu að verja meiri tíma í æfingarnar og hvíldina.

Peppmyndband

Aukaspyrnur er fín æfing fyrir þá sem vilja æfa sig aukalega sjálfir. Hér eru nokkur flott mörk sem krakkarnir geta reynt að líkja eftir.

Sænska úrvalsdeild kvenna verður sýnd á Stöð 2 Sport. Þetta er mjög jákvætt skref og hvet ég alla til þess að fylgjast með atvinnumönnunum okkar þar.

 


Athugasemdir