Íþróttastarf barna og ungmenna eftir 4. maí

Íþróttastarf barna og ungmenna eftir 4. maí

 

Þann 21. apríl, birti heilbrigðisráðherra nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Takmörkun á samkomum tekur gildi 4. maí 2020 kl. 00.00 og gildir til 1. júní 2020 kl. 23.59. Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar. Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.



Íþrótta- og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólastigi:

 

  • Engar fjöldatakmarkanir verða settar á iðkendur.

  • Öll íþrótta- og æskulýðsstarfsemi, inni og úti, verði leyfð.

  • Skíðasvæði verði opin fyrir æfingar barna og unglinga.

  • Sundlaugar, búnings- og sundaðstaða verði opin fyrir sundæfingar barna og unglinga.

  • Keppni í íþróttum barna á leik- og grunnskólastigi verði heimil án áhorfenda.

  • Hvatt verði til sérstaks hreinlætis og handþvottar.


Íþróttastarf fullorðinna:

  • Mest verði sjö einstaklingar með þjálfara á útisvæði sem miðast við hálfan fótboltavöll.

  • Mest verði fjórir einstaklingar með þjálfara á innisvæði sem miðast við handboltavöll.

  • Notkun búningsaðstöðu innanhúss verði óheimil.

  • Hvatt verði til að tveggjametra nándarreglan verði virt.

  • Keppni í íþróttum fullorðinna verði óheimil nema ef hægt sé að uppfylla skilyrði um tveggja metra nándarreglu og að keppni sé án áhorfenda. 
  • Sundæfingar fyrir fullorðna verði að hámarki fyrir sjö einstaklinga. Notkun búnings- og sturtuaðstöðu verði leyfð.
  •  Áfram verði hvatt til sérstaks hreinlætis, handþvottar og notkunar handspritts.

ÍSÍ hvetur fólk til að skoða öll gögnin vandlega og vera í sambandi ef eitthvað er óljóst eða spurningar vakna.

Sóttvarna- og heilbrigðisyfirvöld eru í góðu samstarfi við ÍSÍ og UMFÍ og taka fagnandi ábendingum og fyrirspurnum er varða íþróttastarfið og COVID-19.

Fylgiskjöl
 sem gott er að kynna sér:

Auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar
Minnisblað sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra dags. 19. apríl


Athugasemdir