Palli Gísla hætt­ir sem þjálf­ari Magna

Páll Viðar Gísla­son hef­ur látið af störf­um sem þjálf­ari meist­ara­flokks Magna. Palli Gísla óskaði eft­ir því að láta af störf­um og hef­ur stjórn Magna orðið við þeirri ósk hans.

Stjórn Íþrótta­fé­lags­ins Magna þakk­ar Páli Viðari fyr­ir afar góð störf í þeirri miklu
upp­bygg­ingu sem hef­ur verið síðustu ár hjá Magna á Greni­vík og ósk­um við Páli velfarnaðar
og góðs geng­is í því sem hann tek­ur sér fyr­ir hend­ur í framtíðinni. Unnið er að ráðningu nýs þjálf­ara meist­ara­flokks Magna.

Stjórn Íþrótta­fé­lags­ins Magna


Athugasemdir